09.08.2008 19:58:33 / Sleggjan
Stefnt er að því að halda póker næsta föstudag og verður þetta því líklega seinasta pókermót sumarsins, því um að gera að mæta. frekari upplýsingar koma síðar.
»
08.07.2008 17:12:22 / Eggert
Póker á FÖSTUDAGINN.. Þar sem þetta er cash-game þá er meira inn. Þá getur fólk hætt þegar það vill eftir ákveðinn tíma.
- Klukkan 7:30
- 3000-4000 þús inn
- Blindu 50/100 ?
Spurning hver getur haldið (Arnþór?)
Ooog hverjir eru game?
»
25.06.2008 12:27:53 / Brynja
Bekkirnir fyrir næsta ár eru komnir á Innu (https://www.inna.is/Nemendur/)
»
14.06.2008 14:28:49 / Sleggjan
Fyrir þá sem hafa áhuga þá verður opið hús í heimili mín að Eskihlíð 11 frá kl. 20:00 í dag. Boðið verður upp á póker í tilefni dagsins og kostar 1000 krónur inn. Endilega skrifið athugasemd ef þið sjáið ykkur fært að mæta.
Heil og sæl, Arnþór
-vp
»
20.05.2008 13:30:32 / Eggert
Kæru samstarfsfélagar!
Þar sem síðasta prófið er á morgun þá segji ég að allur bekkurinn komi í körfu á miklatúni eftir prófið. Kannski borða eitthvað fyrst. Þeir sem nenna ekki eru bjánar
Allir game ?
»
06.05.2008 22:13:34 / Sleggjan
Hei krakkar, á einhver söguglósur, mig vantar svo rosalega fyrir prófið á fimmtudag því ég kann þetta ekkert.

Ég sendi Viðari póst og hann gerði mig bara ennþá ruglaðri. Pirr!
Nei ég er að grínast í ykkur krakkar, ég þarf ekki að taka þetta próf, ég er nefnilega komin í sumarfrí. Toj toj!

Anna K.
»
03.05.2008 19:39:45 / OliKrummi
Jæja það er Lotte útdráttur á MR mailinu ykkar því það er það leiðinlega saga að ég gat ekki hugsað mér að láta ykkur öll lesa hana, allavega ekki oftar en einu sinni.. Þannig að ég bjó til útdrátt 
Gangi ykkur vel
Kv. Ólikrummi
»
30.04.2008 20:07:22 / Sagan
Ég vildi bara þakka öllum fyrir frábær tvö ár. Ég held að við séum öll sammála því að þetta hafi verið frábær bekkur

Ég setti inn myndir af síðasta skóladeginum á
þessa myndasíðu (þeir sem vilja fjarlægja einhverjar myndir endilega látið vita

)
Ég vona að öllum gangi über vel í prófunum og láti ljós sitt skína hvert sem þeir fara í lífinu!
Ást og friður
4. Z kveður
P.s. Einhver gleymdi stærðfræðibókinni sinni í stofunni. Vilji viðkomandi fá hana aftur þá vinsalegast látið vita 
»
28.04.2008 14:34:58 / Sleggjan
„The end of an era is imminent, meet your destiny with style,“ Mahatma Gandhi.
Á miðvikudaginn næstkomandi er síðasti skóladagur okkar sem 4. Z og lýkur þar með tveggja ára farsælu samstarfi og samveru. Að þessu tilefni er við hæfi að allir mæti í sínum fínustu fötum og geri sér glaðan dag. Í leiðinni vil ég þakka ykkur fyrir tvö frábær ár í lífi mínu, þetta er sannarlega einhver albesti bekkur sem ég hef lent í.
Í stuttu máli; Miðvikudagur = sparídagur ársins hjá 4. Z.

»
23.04.2008 15:38:12 / Eggert
Það er pókermót hjá Brynju í kvöld !!
Mæting klukkan 9 og 1000 kall inn ..
Hverjir ætla mæta ?
»
11.04.2008 23:44:27 / Eggert
Það er pókermót hjá Sögu í kvöld !!
Mæting klukkan 8 og 1000 kall inn ..
Hverjir ætla mæta ?
»
04.04.2008 17:17:39 / Sölvi
Ætlaði bara að minna ykkur kæru bekkjarfélaga um að mæta með 500 kr. á mrg.
Þetta er fyrir leynilega planið okkar sem enginn utanaðkomandi má vita nokkuð um.
»
17.03.2008 15:13:40 / Sleggjan
Ef veður leyfir, þá legg ég til að miðvikudaginn næstkomandi skelli bekkurinn sér í Bláfjöll saman og geri sér góðan dag. Megið endilega tjá ykkur ef þið ætlið að koma.
Arnþór
»
11.03.2008 16:11:17 / Sleggjan
Bara að prufa, hvort þetta virki.
»
06.03.2008 17:11:16 / Rósa
Það er fyrsti föstudagur marsmánaðar á morgun. Er þá ekki málið að mæta fínn í skólann? Og það er náttúrulega sérlega viðeigandi að mæta vel klæddur á kosningadaginn til heiðurs lýðræðinu og allt það, er það ekki?
»
Síður:
1 2 3 ...
12